Títanhella 19

SKOÐA BIL

Forsölunni lýkur eftir:

Veldu hús

Matshluti 1

Matshluti 2

Helstu eiginleikar

Góð lofthæð og stórar hurðir

Bilin eru rúmgóð og aðgengileg, með góðri lofthæð sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Stærri bil

  • Lofthæð er 4,8 metrar við útvegg og 6,1 metri í mæni.
  • Undir millilofti er 2,9 metra lofthæð sem gefur góða möguleika á geymslu hjólhýsa og annars búnaðar.
  • Lofthæð á millilofti er frá 2,3 upp í um 2,8 metra.
  • Fyrir framan milliloftið er næg lofthæð til að koma fyrir bílalyftu.
  • Vandaðar iðnaðarhurðir eru 3 metrar á breidd og 3,35 metrar á hæð.

Minni bil

  • Lofthæð er 3,9 metrar við útvegg og 4,6 metrar í mæni.
Vandað þak - hannað með hljóðvist og endingu í hug

Þakið er einstaklega vandað og byggt úr 160 mm þykkum einingum, með harðpressaðri steinull(100 kg/m³). Yfirborðið er lagt heilsoðnu, tvöföldu lagi af IKO-þakpappa. Þaktak ehf. sá um framkvæmdina og veitir tíu ára ábyrgð á þakfráganginum.

Helstu kostir:

  • Steinullin og tvöfalt lag þakpappa veita góða hita- og hljóðeinangrun.
  • Heilsoðinn IKO-þakpappi myndar sterkt og endingargott yfirborð.
  • Tíu ára ábyrgð er á þakfráganginum.
Vandaður og stílhreinn frágangur

Innra og ytra útlit bilanna verður nútímalegt, stílhreint og flott, með vönduðu efnisvali.

  • Innveggir verða ljósgráir.
  • Stálburðarvirki verður brunavarið dökkgrátt að lit.
  • Vönduð lýsing verður í öllum rýmum, með tunnuljósum í sal, kösturum á millilofti og svörtum, flötum ljósum undir því.
  • Gólf verða lögð slitsterku epoxy-efni sem hentar vel fyrir fjölbreytta og krefjandi notkun.
  • Ljósleiðarabox verður í hverju bili.
  • Ryðfríar neysluvatns- og ofnalagnir.
  • Vandaðar raflagnir með 3-fasa rafmagni.

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur til að fá nánari upplýsingar um laus bil, stærðir og mögulegar útfærslur.

Við aðstoðum þig við að finna rými sem hentar þínum þörfum.

    Senda skilaboð